Sjö börn fórust þegar jeppi valt

Ljósmynd/Wikipedia.org

Sex börn voru á meðal tíu manns sem létu lífið þegar jeppabifreið valt á leið yfir fljótið Shui Síberíu í Rússlandi skammt frá landamærum landsins að Mongólíu.

Fram kemur í frétt AFP að heimildir hermi að um hafi verið að ræða einstaklinga sem tilheyrt hafi tveimur fjölskyldum. Jeppabifreiðin hafði aðeins sæti fyrir sjö.

Málið er til rannsóknar hjá rússneskum yfirvöldum. Verið er meðal annars að skoða hvort ekki hafi verið farið að öryggisreglum í samræmi við umferðarlög.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert