Herinn aðstoðar vegna skógarelda

Skógereldarnir í Síberíu hafa geisað í marga daga.
Skógereldarnir í Síberíu hafa geisað í marga daga. AFP

Vladimir Pútín, Rússlandsforseti, hefur óskað eftir aðstoð hersins til að takast á við mikla skógarelda sem hafa geisað í Síberíu undanfarna daga.

Reykjarmökkur hefur umlykið heilu borgirnar vegna eldanna. Umhverfisverndarsinnar hafa varað við því að skógareldarnir geti flýtt fyrir hlýnun jarðar, svo ekki sé minnst á öll þau heilsufarsvandamál sem þeir geta valdið heimamönnum.

Eldarnir ná yfir um þriggja milljóna hektara svæði í mið- og austurhluta Rússlands.

„Eftir að hafa séð skýrslu frá ráðherra neyðarmála bað Pútín varnarmálaráðuneytið um að taka þátt í að slökkva eldana,“ sagði upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar við rússneska fjölmiðla.

Um 2.700 slökkviliðsmenn  hafa nú þegar barist við eldana.

Vladimir Pútín.
Vladimir Pútín. AFP

Að sögn varnarmálaráðuneytisins hafa tíu flugvélar og tíu þyrlur verið sendar í héraðinu Krasnoyarsk, þar sem eyðileggingin hefur verið einna mest. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í fimm héruðum.

Undirskriftalisti hefur verið settur upp á vefsíðunni change.org þar sem stjórnvöld eru hvött til að leggja meira af mörkum í baráttunni við eldana og hafa um 800 þúsund manns skrifað undir.

Eldarnir hafa að mestu geisað á afskekktum svæðum og hafa stjórnvöld greint frá því að þeir verði ekki slökktir nema reiknað sé með meiri skemmdum en sem nemur kostnaði við slökkvistarf.

Að sögn Greenpeace í Rússlandi hafa um 12 milljónir hektara brunnið í landinu á þessu ári með tilheyrandi koltvísýringi sem hefur farið út í andrúmsloftið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert