Weinstein með kórónuveiruna

Harvey Weinstein.
Harvey Weinstein. AFP

Fyrrverandi kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Weinstein, sem er í Wende-fangelsinu, skammt frá Buffalo, er í einangrun.

Weinstein var fundinn sekur um nauðgun og kynferðislegt ofbeldi í síðasta mánuði og dæmdur í 23 ára fangelsi fyrir brotin. Verjendur hans hafa sagt að dómnum verði áfrýjað.

Tveir fangar í sama fangelsi greindust smitaðir í gær og hafa nokkrir starfsmenn verið settir í sóttkví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert