„Hann hefur engar sannanir“

Talskona kínverska utanríkisráðuneytis segir Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna ekki hafa …
Talskona kínverska utanríkisráðuneytis segir Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna ekki hafa neinar sannanir fyrir því að kórónuveiran hafi orðið til á kínverskri rannsóknarstofu. AFP

Kínversk stjórnvöld fullyrða að Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi engar sannanir fyrir því að kórónuveiran hafi orðið til á kínverskri rannsóknarstofu líkt og Pompeo hefur ítrekað fullyrt í fjölmiðlum.  

Hua Chunying, talskona kínverska utanríkisráðuneytis segir að það ætti eingöngu að vera í höndum vísindamanna og heilbrigðisstarfsfólks að tjá sig um uppruna veirunnar, í stað stjórnmálamanna sem „ljúga sér til hagsbóta“. „Herra Pompeo tjáir sig í hvívetna en getur ekki lagt fram neinar sannanir. Af hverju ekki? Af því að hann hefur engar sannanir,“ sagði Chunying á blaðamannafundi kínverskra stjórnvalda í dag. 

Kínverjar saka Bandaríkin um að hafa dreift samsæriskenningum um uppruna …
Kínverjar saka Bandaríkin um að hafa dreift samsæriskenningum um uppruna veirunnar til að draga athyglina frá því hvernig bandarísk stjórnvöld hafa brugðist við útbreiðslu veirunnar. AFP

Pom­peo fullyrti á sunnudag að „mjög sterk­ar vís­bend­ing­ar“ sýndu að veir­an ætti upp­runa sinn á rann­sókn­ar­stofu í Kína. Þessi kenn­ing hef­ur ít­rekað verið bor­in til baka bæði af Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­inni (WHO) og ýms­um vís­inda­mönn­um. Fyrstu rannsóknir benda til þess að veiran eigi upptök sín á matarmarkaði í kínversku borginni Wuhan og hafi borist úr dýrum í menn. 

Kínverjar saka Bandaríkin um að hafa dreift samsæriskenningum um uppruna veirunnar til að draga athyglina frá því hvernig bandarísk stjórnvöld hafa brugðist við útbreiðslu veirunnar. Yfir 70 þúsund hafa látist úr veirunni í Bandaríkjunum og hafa hvergi verið fleiri. 

Chen Xu, sendiherra Kína hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði á fundi í Genf í morgun að það væri ekki forgangsmál hjá þarlendum yfirvöldum að bjóða alþjóðlegum sérfræðingum að rannsaka uppruna kórónuveirufaraldursins á meðan hann er enn að ganga yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert