Ekki færri smit í tæpar tvær vikur

Karlmaður með grímu í Moskvu.
Karlmaður með grímu í Moskvu. AFP

Síðastliðinn sólar­hring voru tæp­lega 10 þúsund kórónuveirusmit staðfest í Rússlandi en það er í fyrsta skipti í rétt tæpar tvær vikur þar sem staðfest smit eru færri en 10 þúsund í landinu.

Alls voru 9.974 tilfelli staðfest undanfarinn sólarhring en staðfest smit í landinu eru 252.245 og eru tilfellin aðeins fleiri í Bandaríkjunum og á Spáni.

Aðeins hafa 2.305 dauðsföll verið skráð vegna veirunn­ar í Rússlandi og vilja yf­ir­völd þar í landi meina að það sé vegna þess hve mörg sýni eru tek­in.

Marg­ir telja hins veg­ar að dán­artal­an sé mun hærri en gef­in hef­ur verið upp.

Flest eru tilfellin í Moskvu, höfuðborg Rússlands, en 4.712 tilfelli voru staðfest í borginni síðasta sólarhringinn.

Létt hefur verið á aðgerðum vegna veirunnar í Rússlandi, þrátt fyrir að mikla daglega fjölgun smita.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert