Meintur bandarískur njósnari fékk 16 ára dóm

Bandaríkjamaðurinn Paul Whelan, sem hefur verið í varðhaldi í Rússlandi grunaður um njósnir, var í morgun dæmdur í 16 ára fangelsisvistar. Hann mun ekki afplána dóminn í venjulegu fangelsi heldur í nokkurs konar útlegð (e. penal colony).

Whelan var handtekinn árið 2018 þegar hann var í brúðkaupi hjá bandarískum vini sínum og rússneskri eiginkonu hans. Hann hefur verið í haldi lögreglunnar í Rússlandi síðan.

Hann er sakaður um að hafa verið með ríkisleyndarmál í fórum sínum en hann var með USB-lykil á sér þegar hann var handtekinn. Sagt er að á honum hafi fundist viðkvæmar upplýsingar, þar á meðal listi yfir nöfn sem einhverra hluta vegna áttu að fara leynt.

Dómstóll í Moskvu taldi sekt Whelan sannaða og felldi dóm yfir honum á meðan Whelan hélt á skilti sem á stóð „Gerviréttarhöld“ (e. Sham trial) og kallaði eftir því að Donald Trump Bandaríkjaforseti myndi skerast í leikinn.

Paul Whelan, fyrrverandi hermaður í bandaríska sjóhernum, fékk 16 ára …
Paul Whelan, fyrrverandi hermaður í bandaríska sjóhernum, fékk 16 ára dóm. AFP
Whelan kallar eftir því að Donald Trump skerist í leikinn.
Whelan kallar eftir því að Donald Trump skerist í leikinn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert