Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Program) hlýtur friðarverðlaun Nóbels þetta árið. Norska nóbelsnefndin tilkynnti um þetta nú fyrir stundu.
Verðlaunin eru veitt fyrir baráttu stofunarinnar gegn hungri í heiminum, fyrir framlag hennar til bættra aðstæðna til friðar á stríðshrjáðum svæðum og fyrir aðgerðir sem koma í veg fyrir að hungur sé notað sem vopn í átökum, að því er segir í rökstuðningi Nóbelsnefndarinnar.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna eru stærstu mannúðarsamtök heims sem takast á við hungur og matvælaöryggi. Árið 2019 aðstoðaði stofnunin nærri 100 milljónir manna í 88 löndum sem voru fórnarlömb bráðs matvælaóöryggis og hungurs.
Árið 2015 var útrýming hungurs innleitt sem eitt af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og segir í rökstuðningi Nóbelsnefndarinnar að Matvælaáætlunin sé helsta tól Sameinuðu þjóðanna til að ná fram því markmiði.
„Norska Nóbelsnefndin vill leggja áherslu á að aðstoð sem eykur fæðuöryggi dregur ekki aðeins úr hungri heldur getur einnig hjálpað til við að bæta horfur á stöðugleika og friði. Matvælaáætlunin hefur tekið forystuhlutverk í samþættingu mannúðarstarfs og friðarumleitana með frumkvöðlaverkefnum í Suður-Ameríku, Afríku og Asíu,“ sagir í tilkynningu frá Nóbelsnefndinni.
Fréttin hefur verið uppfærð