Tony Hsieh, fyrrverandi forstjóri skó- og fataverslunarinnar Zappos.com, er látinn. Hann lést eftir eldsvoða á heimili fjölskyldu sinnar í Connecticutríki í Bandaríkjunum.
Hsieh var einungis 46 ára þegar hann lést. Hann hafði lokið störfum hjá Zappos mjög nýlega en þar starfaði hann í 20 ár, þar til Amazon keypti fyrirtækið fyrir meira en milljarð bandaríkjadala.
It is with very heavy hearts that we are sharing some very sad news, as we have learned that Tony passed away earlier today (11-27-20). The world has lost a tremendous visionary and an incredible human being. We recognize that...https://t.co/RUMNOFrItZ pic.twitter.com/NSAFGW8p4L
— Zappos.com (@Zappos) November 28, 2020
Samúðarkveðjum rigndi inn á samfélagsmiðla í dag. Zappos gaf út yfirlýsingu þar sem fyrirtækið sagði að heimurinn hefði misst „gífurlegan hugsjónamann“.
Celebrating the life while mourning the loss of my dear friend Tony Hsieh. Tony was a deeply original thinker always challenging me to reject conformity & follow my heart. Tony was driven by the mission of delivering happiness & brought joy to all who knew him. Rest In Peace Tony pic.twitter.com/Nd5o6U7wV9
— Ivanka Trump (@IvankaTrump) November 28, 2020
Tony Hsieh skrifaði bókina Delivering Happiness sem fjallar um hugmyndafræði hans hvað varðar starfsmenn og viðskiptavini. Þar dregur Hsieh fram mikilvægi þess að stjórnendur horfi bæði til velferðar viðskiptavina sinna og starfsmanna.