Grunaður um að hafa myrt grunnskólakennara

Sabina Nessa var aðeins 28 ára þegar hún lést.
Sabina Nessa var aðeins 28 ára þegar hún lést. AFP

Karlmaður hefur verið handtekinn grunaður um morðið á grunnskólakennaranum Sabinu Nessa í suðausturhluta London.

Lík Nessa, sem var 28 ára, fannst almenningsgarðinum Cator Park í hverfinu Kidbrooke 18. september síðastliðinn.

38 ára maður var handtekinn vegna málsins í Austur-Sussex í nótt.

Frá minningarathöfn um Sabinu Nessa í London á föstudaginn.
Frá minningarathöfn um Sabinu Nessa í London á föstudaginn. AFP

Lögreglan Scotland Yard hafði áður birt myndir úr eftirlitsmyndavél af manni á gangi framhjá Pegler-torgi nóttina sem ráðist var á Nessa.

Hún ætlaði að hitta vin sinn á barnum The Depot eftir að hafa yfirgefið heimili sitt við Astell Road, að því er BBC greinir rá.

Lík hennar fannst daginn eftir í garðinum, skammt frá göngustíg. Tveir aðrir menn höfðu áður verið handteknir vegna gruns um morðið en síðar var þeim sleppt úr haldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert