Sprengjum rignir yfir Kænugarð

Skjáskot úr myndskeiði sem úkraínska þingið deildi í kvöld.
Skjáskot úr myndskeiði sem úkraínska þingið deildi í kvöld.

Átök eru hafin í loftinu yfir Kænugarði og miklar sprengingar sjást á himni sem jörðu í höfuðborginni.

Frá þessu greina blaðamenn og sjónarvottar á svæðinu og fregnir herma að sprengjuregn sé hafið nú undir kvöld, en klukkan er að nálgast átta að staðartíma.

Úkraínska þingið deilir eftirfarandi myndskeiði:

Blaðamaðurinn Christopher Miller deilir samskiptum við tengilið í borginni Vasylkív, sem stendur skammt utan Kænugarðs:

Hvítrússneska fréttastofan Nexta sýnir þá einnig frá vettvangi:

Berjast á móti af hugrekki

Varað var við því í dag að inn­rás Rússa í Úkraínu væri að verða sífellt mis­kunn­ar­laus­ari. Þetta sagði ut­an­rík­is­mála­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, Josep Bor­rell, eft­ir fregn­ir af sprengju­árás­um Rússa í Kharkív, ann­arri stærstu borg Úkraínu, í dag.

„Rúss­neska her­ferðin er að verða sí­fellt vægðarlaus­ari og vopnað lið Úkraínu er að berj­ast á móti af hug­rekki,“ tjáði Bor­rell blaðamönn­um nú síðdeg­is.

„Það er mikið mann­fall borg­ara, og flæði fólks í leit að skjóli frá stríðinu er að aukast.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert