Gas flæðir til Póllands á nýjan leik

Vladimír Pútín Rússlandsforseti. Stjórnvöld þar í landi vildu að Pólverjar …
Vladimír Pútín Rússlandsforseti. Stjórnvöld þar í landi vildu að Pólverjar greiddu fyrir gasið með rússneskum rúblum. AFP

Rússneskt gas er aftur farið að streyma til Póllands en hlé var gert á þeim sendingum í morgun. Þá hafði streymi gass í gegnum evrópsku Yamal-gasleiðsluna frá Hvíta-Rússlandi til Póllands lækkað niður í ekkert. 

Pólland tilkynnti í gær að rússnesk yfirvöld hefðu hótað því að skera á sendingar á gasi til landsins í dag eftir að pólsk stjórnvöld neituðu að greiða fyrir gasið í rússneskum rúblum. 

Lifandi fréttastreymi BBC

Uppfært: 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert