„Ég brast í grát þegar ég sá hana“

Ísraelsk yfirvöld segja að 14 gíslar sem voru í haldi …
Ísraelsk yfirvöld segja að 14 gíslar sem voru í haldi hryðjuverkasamtakanna Hamas á Gasasvæðinu hafi verði sleppt í dag. AFP/Alex Mita/Hamas

Ísraelsk yfirvöld segja að 14 gíslum sem voru í haldi hryðjuverkasamtakanna Hamas á Gasasvæðinu verði sleppt í dag. Þess í stað verður 42 palestínskum föngum sleppt úr ísraelskum fangelsum.

Fangelsismálayfirvöld í Ísrael segja að fangarnir 42, bæði karlkyns og kvenkyns, verði látnir lausir samkvæmt ákvæðum vopnahléssamningsins sem felur í sér að Hamas fær lausa þrjá fanga á móti hverjum gísl sem þeir sleppa.

Í dag er annar dagur af fjögurra daga vopnahléi.

Hér sést er Hamasliði skilar eldri konu í gær. Hamas …
Hér sést er Hamasliði skilar eldri konu í gær. Hamas rændi henni ásamt um 240 gíslum í árás sinni á Ísrael 7. október. AFP/Alex Mita/Hamas

Veifuðu fána Hamas 

Móðir taílensks gísl, sem sleppt var í gær, sagði CNN að hún hafi grátið af hamingju þegar hún frétti að dóttir sín væri orðin frjáls. Í gær var ekki vitað hvaða fólk yrði frelsað fyrr en fólkið var komið á ísraelska grundu.

Í gær var 24 gíslum sleppt úr haldi Hamas, þar af 13 frá Ísrael, fyrir 39 fanga úr ísraelskum fangelsum.

„Ég brast í grát þegar ég sá hana í tveimur myndböndum. Ég þekkti hárið á henni og hvernig hún gengur venjulega. Ég hélt að þetta væri örugglega hún þegar ég sá konu ganga að rútu í rauðum kjól með hennar hárgreiðslu,“ sagði Boonyarin Srichan, móðir Nutthawaree Munkan, við CNN í síma á laugardag.

Það var einnig fagnað er palestínsku föngunum var sleppt á Vesturbakkann en þar sást fólk veifa bæði fána Palestínu og hryðjuverkasamtakanna Hamas.

Þessir palestínsku fangar fengu frelsi sitt í gær og fögnuðu …
Þessir palestínsku fangar fengu frelsi sitt í gær og fögnuðu því með því að veifa fána Hamas á götum úti. AFP/Ahmad Gharabli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert