Innrás hafin í Suður-Gasa

Skriðdreki Ísraelshers nærri landamærunum að Gasasvæðinu í gær, 3. desember.
Skriðdreki Ísraelshers nærri landamærunum að Gasasvæðinu í gær, 3. desember. AFP/Menahem Kahana

Ísraelsher hefur hafið árás í Suður-Gasa. Þetta fullyrðir bandaríska dagblaðið New York Times

Reisir dagblaðið mat sitt á gögnum úr gervihnattamyndum sem sérfræðingar þess hafa greint. Sýna gögnin að árásin hafi verið í farvatninu í nokkurn tíma. 

Telja lykilmenn Hamas fela sig í norðurhlutanum

Ísraelsher hefur unnið umtalsvert af landi í norðurhluta Gasasvæðisins síðan í október. Nú er árás hafin á landi í þann hluta sem hefur hingað til verið undir stjórn Hamas-hryðjuverkasamtakanna. 

Í umfjöllun New York Times segi að þessi innrás muni koma til með að hafa mikil áhrif á gang stríðsins. Í suðrinu er borgin Khan Younis. Telja ráðamenn í hernum að lykilmenn innan Hamas-hryðjuverkasamtakanna hafa falið sig allt frá því Ísraelsher hóf árásir á norðurhluta Gasa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert