Bandaríkjaher fær aðgang að sænskum herstöðvum

Bandarískir hermenn.
Bandarískir hermenn. AFP/Cristof Stache

Bandaríkjaher fær „óhindraðan“ aðgang að 17 sænskum herstöðvum, að því er segir í nýju samkomulagi á milli ríkjanna. Sænska ríkisútvarpið greinir frá.

Samkvæmt samkomulaginu getur her Bandaríkjanna meðal annars framkvæmt heræfingar í sænsku herstöðvunum, haft þar viðveru hermanna og fyllt eldsneyti á flugvélar og skip hersins.

Kjarnavopn verða ekki flutt eða geymd á sænsku landsvæði að sögn Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert