Hóf skothríð í háskóla í Las Vegas

Óvíst er hversu margir urðu fyrir skoti.
Óvíst er hversu margir urðu fyrir skoti. AFP/Bridget Bennett

Byssumaður hóf skotárás í Nevada-háskóla í Las Vegas í Bandaríkjunum í dag. Lögregla segist telja sig hafa staðsett árásarmanninn og segir hann nú látinn. 

Óljóst er hversu margir urðu fyrir skoti eða hversu alvarlega særðir þeir kunna að vera. 

Tilkynnt var um árásina rétt fyrir hádegi að staðartíma þegar skólinn sendi frá sér neyðarboð til nemenda. Áttu þeir að rýma skólann og safnast saman á skilgreindum öruggum svæðum. 

Skömmu síðar greindi lögreglan í Las Vegas frá því á X, áður Twitter, að hún væri í útkalli vegna skotárásar við skólann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert