Pútín í sjaldgæfri heimsókn handan gamla járntjaldsins

Vladimír Pútín og Mohammed bin Zayed al-Nahyan forsetar Rússlands og …
Vladimír Pútín og Mohammed bin Zayed al-Nahyan forsetar Rússlands og Sameinuðu arabísku furstadæmana takast í hendur við komu Pútíns til Abú Dabí í dag. AFP

Vla­dimír Pútín Rússlandsforseti lenti í Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrr í dag í sjaldgæfri heimsókn utan ríkja fyrrum Sovétríkjanna.

Þetta hefur AFP eftir rússneskum miðlum.

Aftur á alheimskortið

Sagt er að Rússland hyggist koma sér aftur á alheimskortið. Pútín mun hitta Mohammed bin Zayed al-Nahyan, forseta landsins, áður en hann ferðast til Riyadh í Sádí-Arabíu þar sem hann mun hitta krónprinsinn, Mohammed bin Salman, að því er fram kemur í tilkynningu frá Kreml.

Heimsókn Pútíns verður fylgt eftir með heimsókn Ebrahim Raisi, forseta Íran, til Moskvu á morgun. Íranir eru lykilvopnabirgjar Rússa í árásarstríði þeirra í Úkraínu.

„Vél Pútíns er lent í Abú Dabí,“ greindi rússneski ríkismiðillinn RIA Novosti frá og sýndi hvar embættismenn tóku á móti forsetanum á flugbrautinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert