Egyptar reisa múr við Gasa

Egyptar eru að byggja múr.
Egyptar eru að byggja múr. Gervihnattarmynd/Maxar Technologies

Af gervihnattarmyndum að dæma þá hafa Egyptar á síðustu dögum verið að byggja múr vestur af Rafah-landamærunum við Gasa.

Egyptar viðurkenna ekki opinberlega uppbygginguna en Associated press hefur greint myndirnar og virðist lítill vafi vera á því að um umfangsmiklar framkvæmdir er að ræða.

ABC News greinir frá.

Ísraelsmenn boða sókn inn í Rafah

Gervihnattarmyndirnar, sem teknar voru á fimmtudag af Maxar Technologies, sýna áframhaldandi framkvæmdir á veggnum, sem liggur með fram Sheikh Zuweid-Rafah veginum um 3,5 kílómetra vestur af landamærunum að Gasa. Á myndunum má sjá krana, vörubíla og það sem virðist vera steyptir vegatálmar sem verið er að setja upp með fram veginum.

Ísraelsmenn hafa boðað sókn inn í Rafah-borg til að ganga á milli bols og höfuðs á hryðjuverkasamtökunum Hamas og virðast Egyptar óttast það að flóttamenn frá Gasa fari yfir landamærin.

Egyptar hafa hingað til ekki viljað taka við palestínskum flóttamönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert