Pútín ferðast á hljóðhraða

Vladimír Pútín Rússlandsforseti klifrar um borð í herþotuna.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti klifrar um borð í herþotuna. AFP/Dmitry Azarov

Vladimír Pútín Rússlandsforseti fór í prufuflug með herþotu sem er fær um að ferja kjarnorkuvopn og getur flogið á hljóðhraða eða um það bil 343,2 m/s.

Styrkleikasýning Pútíns

Svo virðist sem að prufuflugið hafi verið svokölluð styrkleikasýning nú tveimur dögum áður en tvö ár verða frá innrás Rússlands í Úkraínu. 

Ríkisfjölmiðill sýndi herþotuna, sem er af gerðinni Tu-160M, taka á loft og lenda nærri framleiðandanum í borginni Kazan fyrir miðju Rússlandi.

„Ný á marga vegu“

„Þetta er ný vél, ný á marga vegu. Hún lætur betur að stjórn, það er bersýnilegt,“ sagði Pútín í viðtali við ríkisfjölmiðilinn, en hann varði 30 mínútum í vélinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert