Þýska lögreglan handtók einstaklinga í dag í leit sinni að tveimur liðsmönnum Baader-Meinhof sem hafa verið á flótta í meira en 30 ár.
Ernst-Volker Staub er 69 ára gamall og Burkhard Garweg er 55 ára gamall. Þeir voru báðir liðsmenn í Rauðu herdeildinni, eða Baader-Meinhof samtökunum, sem stóðu á bak við fjölda hryðjuverka í Þýskalandi á áttunda og níunda áratugnum.
Leit að mönnunum hefur aukist síðustu daga eftir að Daniela Klette, sem er 65 ára gömul og var einnig liðsmaður í samtökunum, var handtekin á mánudag.
Lögregla greindi frá því að mennirnir hefðu verið handteknir fyrr í dag en síðar kom í ljós að aðrir voru handteknir og látnir lausir er í ljós kom að ekki var um tvímenningana að ræða.
Baader-Meinhof samtökin voru leyst upp árið 1998. Eftir það er talið að þremeninngarnir hafi lifað á þjófnaði.
Klette var talin „hættuleg“ og lýsti Europol eftir henni. Hún var handtekin í Berlín á mánudag og er grunuð um tilraun til morðs og þjófnaði á árunum 1999 til 2016.
Lögregla telur að Staub og Garweg séu í felum í Berlín. Þá gaf lögregla út nýjar myndir af Garweg í dag.
Lögregla sagðist „ekki geta útilokað“ að Klette og Garweg hefðu átt í beinum samskiptum.