Fjórir áhorfendur létust

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP

Fjórir létust og sjö særðust þegar rallökumaður fór út af brautinni í kappakstri í Ungverjalandi. 

Slysið átti sér stað í ungversku rallkeppninni Esztergom Nyerges Rally sem fer fram um þessar mundir.

Vita ekki hvers vegna ökuþórinn fór út af

Lögregla á svæðinu kveðst ekki vita hvers vegna ökuþórinn fór út af brautinni. 

Atvikið átti sér stað á milli borganna Labatlan og Bajot í norðurhluta Ungverjalands.

Keppnin var samstundis stöðvuð og málið er í rannsókn hjá lögreglunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert