Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur samþykkt að hefja viðræður um vopnahlé á Gasa.
Áætlað er að viðræðurnar eigi sér stað í borgunum Doha og Kaíró á næstu dögum. Ásamt því að semja um vopnahlé verður einnig samið um hvort og hvernig gíslum í haldi Hamas-samtakanna verði sleppt.
Alþjóðadómstólinn fyrirskipaði Ísrael í gær að „tryggja að brýn mannúðaraðstoð“ berist til íbúa Gasa.
Varað hefur verið við yfirvofandi hungursneyð á svæðinu eftir næstum sex mánuði af linnulausum átökum.
Harðir bardagar og viðvarandi sprengjuárásir hafa haldið áfram á Gasa þrátt fyrir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi samþykkt ályktun fyrr í vikunni þar sem farið var fram á „tafarlaust vopnahlé“ á Gasa.