Starfsmenn óvart drepnir – „Þetta gerist í stríði“

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. AFP

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, viðurkenndi í dag að Ísraelsher hefði „óviljandi“ drepið sjö hjálparstarfsmenn í loftárás á Gasaströndinni.

Fórnarlömbin sjö unnu fyrir World Central Kitchen (WCK) sem hefur flutt matvæli til Gasa sjóleiðina frá Kýpur.

„Því miður kom upp það sorglega mál að hersveitir okkar hæfðu óviljandi saklausa borgara á Gasaströndinni í gær,“ sagði Netanjahú við blaðamenn í dag er hann yfirgaf sjúkrahús í Jerúsalem eftir að hafa gengist undir kviðslitsaðgerð.

„Þetta gerist í stríði, við munum rannsaka þetta alveg til enda [...] Við erum í sambandi við stjórnvöld og munum gera allt til þess að þetta gerist ekki aftur,“ sagði forsætisráðherrann enn fremur.

Bíll samtakanna sem varð fyrir árás Ísraelshers.
Bíll samtakanna sem varð fyrir árás Ísraelshers. AFP

Hjálparsamtökin segja árásina gerða viljandi

WCK fullyrðir aftur á móti að árásin hafi verið með vilja gerð á hjálparsamtökin. WCK hyggst gera hlé á aðstoð sinni á Gasaströndinni eftir „markvissa árás Ísraelsmanna“ í gær, að því er fram kom í yfirlýsingu.

Þeir sem lét­ust voru frá Ástr­al­íu, Póllandi, Bretlandi og Palestínu, auk þess sem einn var með banda­rísk­an og kanadísk­an rík­is­borg­ara­rétt. Starfs­menn sam­tak­anna höfðu ný­lokið við að af­ferma tvo bíla með hjálp­ar­gögn­um frá Kýp­ur fyr­ir Gasa­svæðið þegar árás var gerð á þá.

Stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa ítrekað varað við því að hungursneyð vofi yfir á norðurhluta Gasa og kalla ástandið manngerða krísu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert