Var líklegast sama um hvern hann stakk

Að minnsta kosti sex manns eru látnir, en níu voru …
Að minnsta kosti sex manns eru látnir, en níu voru stungnir. AFP

„Það bendir ekkert til þess að einhver hafi verið skotmark, en það gæti breyst,“ segir Karen Webb, lögreglustjóri í New South Wales, um stunguárásina í Westfield-verslunarmiðstöðinni í áströlsku borginni Sydney.

Árás­in átti sér stað rétt fyr­ir klukk­an 16 síðdeg­is að staðar­tíma, eða klukk­an 6 í morg­un að ís­lensk­um tíma.

Webb segir að maðurinn, sem var um fertugt, hafi þegar verið kunnur lögreglunni. Hann gekk mannanna á milli, stakk níu manns og varð 6 þeirra að bana. Hann særði fleiri til, þar á meðal níu mánaða barn.

Sjónarvottar segja við ástralska miðilinn ABC að árásarmaðurinn viðrist hafa stungið fólk „af handahófi“.

Kóngur og páfi votta samúð

ABC segir að lögreglukona hafi skotið manninn til bana er hann reyndi að stinga hana. Forsætisráðherra Ástralíu kallaði lögreglukonuna „hetju“.

Karl Bretakonungur hefur vottað áströlum samúð sína, að því er fram kom í yfirlýsingu frá Buckinghamhöll. 

Frans páfi gerði slíkt hið sama og sagðist einnig vera djúpt snortinn vegna árásarinnar, samkvæmt yfirlýsingu frá Vatíkaninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert