Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fordæmir árás Ísraelshers á Rafah í suðurhluta Gasa fyrr í dag.
Að minnsta kosti 45 manns létu lífið og 249 slösuðust eftir loftárásina, en palestínski Rauði hálfmáninn sagði ísraelska herinn hafa ráðist á afmarkað mannúðarsvæði þar sem flóttafólk dvaldi í tjöldum.
„Það er enginn öruggur staður í Gasa. Þessi hryllingur verður að hætta,“ bætti Guterres við í færslu á samfélagsmiðlum í dag.