Tæplega þrjátíu manns leita lettneska skipverjans

Sex kafarar frá björgunarsveitunum Fiskakletti og Ingólfi leita lettneska skipverjans sem hefur verið leitað frá því á hádegi. Fjörur hafa verið gengnar og sporhundar notaðir. Einnig er leitað á bátum. Alls eru tæplega þrjátíu manns við leitina.

Til stóð að skipverjinn héldi heimleiðis með flugi í morgun. Kom hann ekki fram þegar grennslast var fyrir um hann um borð en allur búnaður hans var í káetu. Sömuleiðis stóð til að skipið, Mermaid Eagle, héldi úr höfn í dag áleiðis til Sevilla á Spáni en ekki hefur orðið af því vegna hvarfs skipverjans. Von er á fleiri köfurum til að aðstoða við leitina en leitað er á yfirborði sjávar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert