Lýsa yfir stuðningi við vændisfrumvarpið

Fimmtán samtök, embætti og þjónustur hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau lýsa yfir stuðningi við svonefnt vændisfrumvarpið og hvetja forseta Alþingi til að taka það sem fyrst til annarrar umræðu.

Samtökin fagna því að vændisfrumvarpið skuli hafa verið afgreitt úr allsherjarnefnd Alþingis og lýsa yfir stuðningi við þær breytingatillögur við frumvarpið sem nú liggja fyrir.

„Þær eru til þess fallnar að tryggja öflugan stuðning við málið og við erum þess fullviss að þær verði til þess að málið fái góðan stuðning frá öllum flokkum sem sæti eiga á Alþingi. Við hvetjum forseta þingsins til að taka frumvarpið til annarrar umræðu sem fyrst svo leiða megi í ljós vilja Alþingis í þessum efnum. Um leið hvetjum við Alþingismenn til að skoða vel rökin sem liggja að baki málinu og tryggja síðan með atkvæði sínu að Ísland fylgi fordæmi Svía og setji ábyrgðina af auknu vændi meðal vestrænna þjóða þar sem hún á heima,“ segir í ályktuninni.

Eftirfarandi samtök skrifa undir ályktunina sem send var fjölmiðlum í dag:

  • Stígamót
  • Samtök um kvennaathvarf
  • Femínistafélag Íslands
  • Prestur innflytjenda
  • Kvenréttindafélag Íslands
  • Kvennaráðgjöfin
  • Tímaritið Vera
  • Kvennakirkjan
  • V-dagssamtökin
  • Kvenfélagasamband Íslands
  • Bríet – félag ungra femínista
  • Unifem á Íslandi
  • Landssamband Framsóknarkvenna
  • Neyðarmóttaka vegna nauðgana
  • Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert