Samgönguráðherra: Póst- og fjarskiptastofnun tryggi fjarskiptaöryggi

Samgönguráðherra hefur, í ljósi umræðu um fjarskiptaöryggi og ásakana í garð fjarskiptafyrirtækja, sent Póst- og fjarskiptastofnun bréf þess efnis að stofnunin bregðist sérstaklega við til þess að tryggja öryggi á þessu sviði, að því er fram kemur í frétt frá ráðuneytinu.

Ráðherrann hefur sent eftirfarandi bréf til Póst- og fjarskiptastofnunar:

„Að undanförnu hefur verið mikil umræða um fjarskiptaöryggi og ábyrgð fjarskiptafyrirtækja og starfsmanna þeirra.

Ljóst er að tölvupóstur og önnur gögn um einkamálefni fólks njóta ríkrar verndar í stjórnarskrá og lögum, m.a. í 1. og 2. mgr. 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti varðandi öryggi og þagnaskyldu. Við brotum á þeim liggja ströng viðurlög. Ekki er síður mikilvægt að almenningur glati ekki trausti á rafrænum samskiptum og öðrum grunnþáttum upplýsingasamfélagsins.

Starfshópur á vegum ráðuneytisins vinnur nú að stefnumótun stjórnvalda á sviði net og upplýsingaöryggis og tillögum að verkaskiptingu hér að lútandi. Það er von ráðuneytisins að starf nefndarinnar leiði til þess að unnt verði að setja skýrar reglur og viðmið um öryggi neta og upplýsinga.

Póst- og fjarskiptastofnun hefur, í umboði samgönguráðherra, mikilvægt og ríkt hlutverk við eftirlit með starfsemi fjarskiptafyrirtækja og framkvæmd fjarskiptalaga.

Í ljósi framangreindrar umfjöllunar og ásakana í garð fjarskiptafyrirtækja telur ráðuneytið óhjákvæmilegt að stofnunin bregðist sérstaklega við til þess að tryggja öryggi á þessu sviði."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert