Fæðingarorlofssjóður fluttur til Hvammstanga

mbl.is/Kristinn

Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að meginstarfsemi Fæðingarorlofssjóðs verði staðsett á Hvammstanga. Frá 1. janúar 2007 flyst starfsemi sjóðsins til Vinnumálastofnunar og hefur ráðherra við þessa ákvörðun falið forstjóra Vinnumálastofnunar og starfsmönnum hans að undirbúa flutninginn. Gert er ráð fyrir að um 10 stöðugildi verði við starfsemi sjóðsins á Hvammstanga. Á fjárlögum fyrir árið 2006 er gert ráð fyrir 7 milljörðum króna til greiðslu fæðingarorlofs og eru viðskiptavinir sjóðsins á milli sjö og átta þúsund á ári hverju, að því er segir í tilkynningu.

Umsýsla atvinnuleysistrygginga flutt til Skagastrandar

Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að umsýsla atvinnuleysistrygginga fari fram og verði staðsett á Skagaströnd. Með gildistöku nýrra laga þann 1. júlí næstkomandi um atvinnuleysistryggingar mun Vinnumálastofnun annast alla stjórnsýslu og umsýslu atvinnuleysistrygginga samkvæmt sérstökum samningi við stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs, sbr. 3. mgr. 6. gr. laganna. Gert er ráð fyrir að um 6–8 stöðugildi verði við starfsemi í reiknistofu atvinnuleysistrygginga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert