Siglt á norðurslóðum: Lega Íslands skýrir áhuga Kínverja

„Ég er að leggja saman tvo og tvo. Ég hef engar beinar sannanir fyrir þessu,“ segir Robert Wade, prófessor við London School of Economics og sérfræðingur í málefnum Kína. Hann telur mikinn áhuga kínverskra stjórnvalda á Íslandi vera tilkominn vegna mikilvægi legu Íslands ef siglingaleiðin yfir Norðuríshafið opnaðist á milli Norður-Kyrrahafs og Norður-Atlantshafs. Hann segir Kínverja hafa mikinn hag af því ef siglingaleiðin opnast þar sem það muni stytta siglingarleiðina á milli Kína og Evrópu annars vegar og Norður Ameríku hins vegar.

Leggur saman tvo og tvo

„Þeir hafa stórt sendiráð á Íslandi, þeir hafa tekið á móti forseta Íslands með glæsilegum hætti og þeir hafa sagst ætla að styðja Ísland til setu í öryggisráðinu sem fær mig til að gruna að hagsmunir liggi að þar að baki,“ segir Wade. Hann segir mjög sérstakt að Kínverjar hafi gefið það út að þeir muni styðja Ísland í kjörinu. „Þeir þurfa ekki að gera það. En það gæti orðið þess til þess að Ísland fengi frekar stuðning Afríkuríkja. Kínverjar hafa gríðarleg ítök í Afríku,“ segir Wade sem segir það vera mjög mikið í anda kínverskra stjórnvalda að vinna á þennan hátt.

Góð staðsetning

Utanríkisráðuneytið stóð fyrir ráðstefnunni „Ísinn brotinn“ á Akureyri í mars síðastliðnum. Þar var fjallað um tækifæri tengd siglingum á norðurslóðum. Meðal þátttakenda á ráðstefnunni voru fulltrúar kínverskra stjórnvalda.

„Ráðstefnan leiddi í ljós að Ísland er mjög vel staðsett fyrir umskipunarhöfn ef siglingaleiðin þvert yfir Norður-Íshafið frá Norður Kyrrahafi opnast þar sem Ísland gæti þjónað flutningum bæði til austurstrandar Norður-Ameríku og til Evrópu,“ segir Ragnar Baldursson, starfsmaður Auðlinda- og umhverfisskrifstofu utanríkisráðuneytissins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert