Skeljungur hækkar eldsneytisverð

AP

Skeljungur hefur hækkað eldsneytisverð í dag um tvær krónur bensínlítrann og þrjár krónur dísilolíulítrann. Kostar lítri af bensíni nú 152,6 krónur í sjálfsafgreiðslu og lítri af dísilolíu kostar 165,5 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert