Mótmælir kvótakerfinu með veiðum

Ásmundur Jóhannsson hefur gert aflamarkslausan bát sinn út til veiða frá Sandgerði síðan 18. júní síðastliðinn. Fyrir viku svipti Fiskistofa hann veiðileyfi sínu. Þrátt fyrir þetta hyggst Ásmundur halda uppteknum hætti.

Eyþór Björnsson, forstöðumaður veiðieftirlitssviðs Fiskistofu, segir að fari menn fram úr veiðiheimildum fái þeir viðvörun áður en til sviptingar veiðileyfis kemur. „Oftast er þetta þannig að menn leiðrétta sig áður en þeir eru sviptir,“ segir Eyþór, „þá fá menn veiðileyfið til baka og málið er dautt“.

Næstu skref hjá veiðieftirlitssviðinu eru að ganga úr skugga um hvort Ásmundur hafi gerst sekur um veiðar án þess að hafa til þess veiðileyfi. Sé það raunin á Ásmundur yfir höfði sér kæru fyrir brot gegn lögum um stjórn fiskveiða.

Leiðrétting er Ásmundi ekki ofarlega í huga en með veiðum sínum vill hann mótmæla kvótakerfinu. Kerfið segir hann ólöglegt með öllu. Hann segist munu halda veiðum sínum áfram þar til stjórnvöld grípi í taumana. Hann muni ekki hika við að fara með mál sitt fyrir Hæstarétt og alla leið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu ef með þarf. „Þetta er náttúrlega brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, þetta er skerðing á atvinnufrelsi og þetta er sennilega bara hreinn og klár þjófnaður,“ segir Ásmundur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert