Rannsóknarnefndin fullskipuð

 Forsætisnefnd Alþingis gekk í dag frá skipan þriggja manna í nefnd til að rannsaka aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða skv. lögum sem Alþingi samþykkti fyrir jól. Nefndina skipa Páll Hreinsson hæstaréttardómari, sem er formaður, Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis og Sigríður Benediktsdóttir, kennari við hagfræðideild Yale-háskóla í Bandaríkjunum.

Páll Hreinsson hefur verið dómari við Hæstarétt síðan 1. sept. 2007. Hann var áður prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og var sæmdur doktorsgráðu frá sama skóla árið 2005.

Tryggvi Gunnarsson hefur gengt embætti umboðsmanns Alþingis síðan 1. nóv. 1998, en var áður sjálfstætt starfandi lögmaður.

Sigríður Benediktsdóttir  hefur verið kennari við Yale-háskóla síðan 2007, en á árunum 2005-2007 starfaði hún hjá bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna í Washington. Hún lauk BS-prófi í tölvunarfræðum frá Háskóla Íslands 1995 og BS-prófi í hagfræði frá sama skóla 1998. Hún lauk tveimur meistaragráðum við Yale 2000 og 2001 og doktorsprófi frá sama skóla  í hagfræði árið 2005.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert