Hlutfallsleg fækkun í Þjóðkirkjunni

Dómkirkjan í Reykjavík.
Dómkirkjan í Reykjavík. mbl.is/Brynjar Gauti

Sóknarbörn í Þjóðkirkjunni, 16 ára og eldri, voru 195.576 talsins þann 1. desember sl. en það er fjölgun um 1032 frá fyrra ári. Hlutfallslega hefur aftur á móti orðið þar fækkun úr 80,1% í 78,6% af öllum 16 ára og eldri.

Hagstofan segir, að þetta sé í fyrsta sinn sem þetta hlutfall fer niður fyrir 80%. Það megi að nokkru leyti skýra með miklum aðflutningi erlendra ríkisborgara á árinu 2008 en þeir flokkist við komuna til landsins með óskráðum trúfélögum nema þeir skrái sig sérstaklega í trúfélög. Í óskráðum og ótilgreindum trúfélögum teljist nú 19.323 miðað við 16.713 í fyrra. Það sé aukning um rúmlega 2.600 einstaklinga eða tæplega 0,8% af heildarmannfjölda.

4,7% þjóðarinnar, 16 ára og eldri, tilheyrðu einum af fríkirkjusöfnuðunum þremur: Fríkirkjunni í Reykjavík (6008), Fríkirkjunni í Hafnarfirði (3735) og Óháða söfnuðinum (2.196). Meðlimum í Fríkirkjusöfnuðum fjölgaði lítils háttar milli ára eða um 464 einstaklinga.

Ásatrúarfélagið þriðja stærsta trúfélagið

Nú tilheyra 5,9% íbúa landsins trúfélögum í skráðum trúfélögum utan Þjóðkirkju og fríkirkjusafnaða. Flest þessara trúfélaga eru smá og einungis þrjú telja fleiri en 1.000 meðlimi. Kaþólska kirkjan er fjölmennust þeirra. Meðlimir hennar 16 ára og eldri voru 6650 árið 2008 samanborið við 5678 1. desember 2007. Hvítasunnukirkjan er næst stærst. Þar eru meðlimir nú 1625 samanborið við 1559 frá fyrra ári. Ásatrúarfélagið er þriðja stærsta trúfélagið en meðlimir þeirra 16 ára og eldri eru nú 1168 samanborið við 1059 ári áður.

Utan trúfélaga höfðu 7769 kosið að standa 1. desember 2008 samanborið við 7310 ári fyrr.

Skráðum trúfélögum fjölgar um 15 frá 1990
Skráðum trúfélögum hefur fjölgað talsvert á undanförnum árum; skráð trúfélög utan Þjóðkirkju og fríkirkjusafnaða eru nú 25 en voru 10 árið 1990. Eitt nýtt trúfélag varð til árið 2008 en það heitir Soka Gakkai International á Íslandi (SGI á Íslandi) og var viðurkennt sem skráð trúfélag af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu þann 14. apríl síðastliðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert