Hætt við að innheimta kostnað

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur fallið frá því að innheimta kostnað vegna útborgunar séreignarsjóðs við sérstakar aðstæður.  Þóknunin átti að nota til að mæta kostnaði við útborgunina sem felst m.a. í breytingu á tölvukerfum og þóknunar við sölu verðbréfa.   

Í ljósi aðstæðna í samfélaginu nú hefur sjóðurinn hins vegar hætt við að innheimta slíka þóknun, að því er segir í tilkynningu.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert