Ráðuneyti skráð á lista InDefence

Fulltrúar InDefence á Bessastöðum með undirskriftalistana.
Fulltrúar InDefence á Bessastöðum með undirskriftalistana. mbl.is/Ómar

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu hefur borist ábending um að nafn ráðuneytisins hafi verið skráð á undirskriftalista InDefence undir árskorun um að forseti Íslands staðfesti ekki ný Icesave lög.

Fram kemur á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins, að nafn og kennitala ráðuneytisins virðist hafa verið misnotuð, enda taki ráðuneytið ekki afstöðu í málinu og geti ekki skrifað undir áskoranir sem atkvæðisbær borgari. Þess hafi verður farið á leit við aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar að nafn ráðuneytisins verði máð af listanum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert