Keppt um Viskukúna 2010

Ásmundur Einar Daðason, þingmaðurNorðvesturkjördæmis, veitti Viskuna 2010 en það var …
Ásmundur Einar Daðason, þingmaðurNorðvesturkjördæmis, veitti Viskuna 2010 en það var í tíð Ásmundar í skemmtinefnd á Hvanneyri sem Viskukýrin komst á koppinn. Logi Bergmann Eiðsson fór á kostum sem spyrill en það voru þeir Helgi Eyleifur Þorvaldsson, Egill Gunnarsson og Halldór Arnar Árnason sem unnu fyrir hönd Búvísindabrautar. mbl.is

Lið Búvísindabrautar við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri bar sigur úr býtum í hinni árlegu spurningakeppni skólans sem nefnist Viskukýrin. Keppnin hefur síðustu árum notið mikilla vinsælda, en þar keppa nemendur, heimamenn og starfsmenn LbhÍ um viskukúna.

Matsalur skólans var troðfullur þegar keppt var um Viskuna 2010 og eftir að hafa svarað misgáfulegum spurningum um hrúta, stóðhesta og landsráðunauta þá var það lið Búvísindabrautar sem bar sigur úr býtum.  Logi Bergmann Eiðsson var eins og undanfarin ár spyrill í keppninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert