Fundi lokið án niðurstöðu

Icesave viðræður hafa staðið yfir að undanförnu
Icesave viðræður hafa staðið yfir að undanförnu Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Fundi Íslendinga með Bretum og Hollendingum um Icesave málið lauk í dag án niðurstöðu. Fulltrúar þjóðanna þriggja hafa átt fundi í Lundúnum síðastliðnar tvær vikur, að því er segir í tilkynningu.

„Við höfðum vonast til þess að sameiginleg niðurstaða um bætt kjör í Icesave-málinu næðist“, segir  Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í tilkynningu.

„Það hefur enn ekki tekist. Báðir aðildar lögðu fram uppbyggilegar tillögur en enn greinir þjóðirnar töluvert á. Við munum nú ræða við samningamenn okkar þegar þeir eru komnir aftur heim.“

Íslenskir kjósendur munu ganga að kjörborði 6. mars næstkomandi þar sem greidd verða atkvæði um gildi laga nr. 1/2010 um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf.        Forseti Íslands synjaði þessum lögum staðfestingar 5. janúar 2010.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert