Ásta skipuð umboðsmaður

Ásta Sigrún Helgadóttir
Ásta Sigrún Helgadóttir Kristinn Ingvarsson

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað Ástu Sigrúnu Helgadóttur, lögfræðing, umboðsmann skuldara. Ásta var metin mjög vel hæf til starfsins í hæfnismati sem unnið var í kjölfar nýafstaðins umsóknarferlis.

Ásta Sigrún Helgadóttir er lögfræðingur að mennt. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1993 og hóf þá störf hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík þar sem hún starfaði sem lögfræðingur fjölskyldudeildar og barnaverndarnefndar Reykjavíkur til ársins 1999. Árin 1999-2003 starfaði Ásta í félags- og tryggingamálaráðuneytinu á skrifstofu jafnréttis- og vinnumála þar sem hún sinnti meðal annars málefnum innflytjenda, var starfsmaður kærunefndar húsnæðismála og úrskurðarnefndar félagsþjónustu og vann ýmis almenn lögfræðistörf. Frá árinu 2003 hefur Ásta gegnt forstöðu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.

Í fréttatilkynningu segir Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, að Ásta hafi verið metin mjög hæf í nýafstöðnu umsóknarferli. Hann hafi alltaf borið fullt traust til hennar og hlakki til að vinna með henni að uppbyggingu embættis umboðsmanns skuldara.


Í tilkynningunni er haft eftir Ástu að hún hafi sótti um þetta starf þar sem hún hafi áhuga á að sinna því og reynslu sem nýtist í starfinu. Þær forsendur hafi ekkert breyst. Hún segist meta það traust sem sér hafi verið sýnt og hlakki til að leiða uppbyggingarstarf embættis umboðsmanns.


Ásta hefur störf mánudaginn 9. ágúst.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert