„Talsverð ringulreið í skólunum“

Frá Vesturbæjarskóla.
Frá Vesturbæjarskóla. mbl.is/Árni Sæberg

Skólastjórnendur grunnskóla í Reykjavík leita nú allra leiða til að mæta kröfum borgaryfirvalda um niðurskurð í skólunum. „Þetta er mikill niðurskurður og skerðing á þeirri þjónustu sem við veitum nemendum okkar,“ segir Ingibjörg Jósefsdóttir, formaður Félags skólastjórnenda í Reykjavík og skólastjóri Hagaskóla.

Í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag segir Ingibjörg ljóst, að þær forsendur sem skólastjórnendum er gert að byggja rekstraráætlanir sínar á geri ráð fyrir skerðingu á kennslumagni um 6%, „sem hefur til dæmis þau áhrif að nemendahópar verða stærri, skerða þarf list- og verkgreinakennslu, val í 8.-10. bekk og stuðning við nemendur. Þessi niðurskurður mun birtast í skólum borgarinnar á ólíkan hátt og mun hafa áhrif,“ segir hún.

Fram kemur í samantekt Samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, vegna fundar með fulltrúum foreldra í síðustu viku, að „nú þegar [sé] talsverð ringulreið í skólunum vegna fækkunar í gangavörslu og frímínútnagæslu“.

Tilmæli menntasviðs Reykjavíkurborgar um niðurskurð í grunnskólum borgarinnar kveða meðal annars á um að dregið skuli úr ræstingu í skólunum, að sögn Ingibjargar Jósefsdóttur, skólastjóra Hagaskóla.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert