Bílvelta á Laxárdalsheiði

Úr Borgarbyggð.
Úr Borgarbyggð. Árni Sæberg

Fólksbíll valt á Laxárdalsheiði, skammt frá Búðardal, í kvöld. Erlendir ferðamenn voru í bílnum og sluppu þeir með skrámur, að sögn lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum.

Ekki er vitað hvað olli slysinu en leiddar eru líkur að því að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í lausri möl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert