Sigur á Lúxemborg

Hjörvar Steinn Grétarsson
Hjörvar Steinn Grétarsson Ómar Óskarsson

Góður 3-1 sigur vannst á Lúxemborg í 3. umferð EM landsliða í skák sem fram fór í Porto Carras í dag.  Hjörvar Steinn Grétarsson, Bragi Þorfinnsson og Helgi Ólafsson unnu en Björn Þorfinnsson tapaði.  Henrik Danielsen hvíldi. 

Hjörvar, sem er aðeins 18 ára, tefldi á fyrsta borði og er sá yngsti í sögunni sem leitt hefur íslenskt skáklandslið.  Þetta er svo í fyrsta skipti síðan í Tórínó 2006 að Helgi teflir með íslenska landsliðinu í skák en Helgi er jafnframt liðsstjóri liðsins.

Íslenska sveitin hefur 2 stig og 5,5 vinning og er í 28. sæti.  Á morgun teflum mætum við Svartfellingum sem eru áþekkir íslensku sveitinni að styrkleika. 

Aserar eru efstir, Spánverjar, sem rétt mörðu Íslendinga í fyrstu umferð eru aðrir og Úkraínumenn eru þriðju.  Danir eru efstir Norðurlandanna í 20. sæti eftir stórsigur, 3,5-0,5, á  Norðmönnum.   Rússar eru efstir í kvennaflokki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert