MS innkallar fimm vörutegundir

Mjólkursamsalan hefur ákveðið að innkallað fimm vörutegundir vegna þess að iðnaðarsalt var notað í framleiðslu þeirra. MS er hætt að nota slíkt salt í vörurnar en um er að ræða vörur sem enn eru í verslunum.

Salt sem notað er í vinnslu Mjólkursamsölunnar er vottað matvælasalt.  Ein af sex vinnslustöðvum MS hefur undanfarið fengið afgreitt iðnaðarsalt, þrátt fyrir að hafa pantað matvælasalt. Það var lítið brot af heildarsaltnotkun fyrirtækisins, samkvæmt tilkynningu.

Notkun á því hefur verið mjög takmörkuð og bundin við Klípu, Létt og laggott,  grjónagraut, hrísmjólk og smyrjanlegan rjómaost. Matvælastofnun telur að neytendum stafi ekki hætta af notkun þessa salts, efnasamsetning er nær sú sama og í venjulegu matarsalti en framleiðsla og dreifing ekki vottuð með sama hætti.

MS hefur þegar skipt um salttegund í framleiðslu framangreindra vörutegunda og innkallar af markaði það sem framleitt var með þessum hætti. Salt í allar aðrar vörur MS hefur verið staðlað matarsalt.


Mjólkursamsalan starfar í samræmi við gæðaeftirlitskerfi. Félagið einsetur sér að nýta einungis fyrsta flokks hráefni í framleiðsluna  og harmar mjög þessi mistök.

Félagið hefur breytt verklagi og krefst nú staðfestingar frá framleiðendum rekstrarvara á að viðkomandi vörur séu vottaðar til matvælaframleiðslu en lætur ekki nægja upplýsingar frá seljendum þessara vara, segir í tilkynningu frá MS.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert