Vísar gagnrýni Bjarna á bug

Guðmundur Hörður Guðmundsson
Guðmundur Hörður Guðmundsson

Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, vísar því á bug að öfgamenn í umhverfismálum sé að hamla verðmætasköpun í landinu eins og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á flokksráðsfundi í gær.

„Öfgamenn í umhverfismálum eru hreinlega að taka orkumál á Íslandi - og þar með verðmætasköpun til langrar framtíðar - í gíslingu,“ sagði Bjarni í ræðu á fundinum.

Guðmundur bendir á að svæði sem falla í virkjanaflokk samkvæmt rammaáætluninni  geti skaffað raforku á við tvær Kárahnjúkavirkjanir. 

„Svona er öllu snúið á hvolf í umræðunni. Ég fæ að minnsta kosti ekki séð hófsemdina í því að selja á milli 80 og 90% raforkuframleiðslunnar til álvera, fórna náttúruperlum og víðernum sem hafa bæði fagurfræðilegt og efnahagslegt gildi, og skuldsetja enn frekar orkufyrirtæki í almannaeigu. Það er kominn tími á að kalla hlutina réttum nöfnum: Stóriðju- og virkjanasinnar sem vilja auka skuldir orkufyrirtækja, fórna náttúruverðmætum og setja öll eggin í álkörfuna, þeir eru öfgafólkið,“ segir Guðmundur Hörður á bloggsíðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert