„Ég vil læra“

7. og 8. bekkur Seyðisfjarðarskóla með bæklinginn.
7. og 8. bekkur Seyðisfjarðarskóla með bæklinginn. mbl.is

Haldið er upp á alþjóðlega Downs-heilkennisdaginn um allan heim 21. mars (21.3.) ár hvert. Ástæðan fyrir þessari dagsetningu er sú að fólk með Downs-heilkenni hefur 3 litninga á 21. litningapari.

Nemendur Seyðisfjarðarskóla hafa yfirleitt gert eitthvað í tengslum við þennan dag og í ár var engin undantekning. Nemendur 7. og 8. bekkjar unnu upplýsingabækling sem liggur frammi á nokkrum stöðum í bænum og kynntu Downs-heilkenni fyrir öðrum nemendum skólans og fólki á förnum vegi.

Yfirskrift alþjóðlega Downs-heilkennisdagsins í ár var „I want to learn“ eða „Ég vil læra“. Búið er að birta myndband af þessu tilefni sem sýnir nemendur með Downs-heilkenni frá 68 löndum við nám og horfðu allir nemendur skólans á það. Myndbandið má sjá hér.

Daníel Björnsson nemandi í 8. bekk Seyðisfjarðarskóla.
Daníel Björnsson nemandi í 8. bekk Seyðisfjarðarskóla. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert