PIP-sílikonpúðarnir eru í mauki

Púðar úr hægra og vinstra brjósti sömu konunnar sem voru …
Púðar úr hægra og vinstra brjósti sömu konunnar sem voru fjarlægðir nýlega á Landspítalanum. Þeir voru báðir mjög illa farnir. mbl.is/Landspítali

Svo virðist sem PIP-brjóstapúðarnir sem nú er verið að fjarlægja úr íslenskum konum séu verr farnir en búist var við. Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður þeirra kvenna sem ætla að höfða mál vegna falsaðra PIP-púða, segir að það sé að koma í ljós núna eftir að byrjað var að fjarlægja púðana úr konunum að málið sé ljótara en flestir bjuggust við.

Á meðfylgjandi mynd sjást PIP-púðar sem voru fjarlægður úr einum umbjóðenda Sögu í aðgerð á Landspítalanum. Báðir voru sprungnir en sá í hægra brjóstinu var verr farinn og hafði sílikonið lekið um stórt svæði með tilheyrandi graftarmyndun. „Þetta er ekki versta tilfellið sem ég hef séð en þetta er mjög slæmt tilfelli. Þetta hefur komið svona út hjá nokkrum konum sem hafa látið fjarlægja úr sér púðana,“ segir Saga

Konan sem um ræðir fékk PIP-brjóstapúðana ígrædda fyrir um tíu árum hjá Jens Kjartanssyni lýtalækni. Hún var farin að kenna sér meins og má búast við að púðarnir hafi sprungið fyrir löngu.

Í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að um 25 konur hafa staðfest við Sögu að þær vilji fara með málsóknina vegna PIP-púðanna alla leið ef svo fer að Jens og dreifingaraðili synji bótaskyldu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert