Tordenskjold fundinn

Hér sést m.a. freigátan Tordenskjold á olíumálverki danska listamannsins Vilhelms …
Hér sést m.a. freigátan Tordenskjold á olíumálverki danska listamannsins Vilhelms Arnesen (1865-1948). Af vefnum Siglfirðingur

„Laugardaginn 21. apríl fann kafarinn Erlendur Guðmundsson leifar hins mikla herskips Tordenskjolds á botni Siglufjarðar þar sem það hefur legið í nærri 90 ár,“ ritar Örlygur Kristfinnsson á vef Síldarminjasafns Íslands í dag. Greint er frá þessu á vefnum Siglfirðingur.

„Um skeið hefur verið samvinna milli Erlends og Síldarminjasafnsins um að grafast fyrir um staðsetningu flaksins. Þótt Tordenskjold hafi verið freigáta búin til styrjalda þá endaði hann „lífdaga“ sína ekki síður sem nokkurs konar síldarminjar, hálfgrafnar í sand og litríkan sjávargróður. En eins og áður hefur komið fram hér á fréttavefnum, var sá gamli dreginn yfir Atlantsála eftir að hann lauk hernaðarhlutverki sínu og var notaður sem lagerskip í síldarhöfninni frægu – rúinn öllum fyrri búnaði og virðuleika.

Skipið var 50,4 m á lengd og 12,9 m á breidd, 1.453 tonn og bar upphaflega 44 fallbyssur. Stærð flaksins kemur heim og saman við þessi mál og mörg önnur söguleg atriði staðfesta að þarna liggur Tordenskjold.

Erlendur Guðmundsson er atvinnukafari og býr á Akureyri. Eitt helsta áhugamál hans er neðansjávarljósmyndun og kvikmyndun. Hann var hér með konu sinni, Laufeyju Böðvarsdóttur, og syni þeirra, Þorbergi, sem einnig kafaði við þessa leit.

Ekki verður gefið meira upp að sinni um staðsetningu flaksins en að það liggur norðan Eyrarinnar (Siglufjarðareyrar/Þormóðseyrar/Hvanneyrar). Næsta skref í athugun Síldarminjasafnsins á Tordenskjold er að fá kafara Fornleifaverndar ríkisins til að skoða skipsleifarnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert