Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var …
Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var 18,315 milljarðar fyrstu fjóra mánuði ársins 2009. mbl.is/Brynjar Gauti

Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum.

Á þetta er bent í nýrri greinargerð Fjármálaeftirlitsins og tekið dæmi af því hvernig afborganir af 20 milljóna króna jafngreiðsluláni hækki um 25.503 krónur ef vextirnir hækka úr 6% í 8%. Á heilu ári jafngildir það um 300.000 kr., eða ríflega tveimur mánaðargreiðslum fyrir vaxtahækkun.

Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að FME telur söguna benda til vaxtahækkana. Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, telur miklar líkur á að vextir hækki.

„Miðað við þau vaxtakjör sem bjóðast í dag eru allar líkur á því að vextir verði hærri þegar kemur að endurákvörðun vaxta. Það er ljóst að yfirgnæfandi líkur eru á því að þeir verði hærri og í mínum huga gætu vextir vel orðið 1-3% hærri en í dag.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert