Skaftárhlaup hafið

Hlaup Í Skaftárhlaupum.
Hlaup Í Skaftárhlaupum. Rax / Ragnar Axelsson

Skaftárhlaup er hafið frá vestari Skaftárkatlinum. Frá því kl. 21 í gærkvöldi hefur ísskjálftavirkni sést á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar á Grímsfjalli og Skrokköldu og Jökulheimum. Allt bendir til þess að vatn úr vestari Skaftárkatli sé að brjóta sér leið undir jöklinum. 

Flugmaður Atlantsflugs í Skaftafelli flaug yfir svæðið kl. 11:50 í dag og staðfesti að hlaupið kæmi úr vestari katlinum. Staðsetning ísskjálfta í katlinum bendir til þess að hlaupvatnið sé nú í um 20 km fjarlægð frá jökulsporðinum. Það þýðir að hlaupið mun ekki ná í Skaftá fyrr en seint í kvöld eða snemma á morgun.

Hlaup úr vestari katlinum eru minni en hlaup úr eystri katlinum og því einnig hættuminni. Það er þó mælt með því að fólk fari ekki að útfalli hlaupsins þar sem hætta er á brennisteinsgasi á því svæði. Einnig má vænta að það hlaupi úr eystri katlinum á næstu dögum eða vikum. Síðast hljóp úr vestari katlinum í júlí 2011.

Á myndinni má sjá að rafleiðni fer hækkandi á stöðinni …
Á myndinni má sjá að rafleiðni fer hækkandi á stöðinni á Sveinstindi sem bendir til þess að örlítið vatn hafi nú þegar lekið úr katlinum. Mynd/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert