Hönnun hjólastæða verðlaunuð

Verðlaun voru í gær veitt tveimur tillögum í hönnunarsamkeppni um hönnun hjólastæða, hjólaskýla og annarra hjólagagna. Reykjavíkurborg og Hönnunarmiðstöð Íslands efndu til samkeppninnar í samstarfi við Arkitektafélag Íslands.

Alls bárust 22 tillögur að hjólagögnum í samkeppnina og voru þær bæði frumlegar og skemmtilegar að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Úrslitin urðu sú að  tvær tillögur deildu með sér fyrsta sætinu. Annars vegar varð fyrir valinu tillaga Sigrúnar G. Halldórsdóttur en í umsögn dómnefndar um tillöguna segir að form hjólastands sé fallegt og sígilt, framsetning i borgarumhverfi eftirtektarverð og sannfærandi. Hjólaskýlið sé látlaust og hafi sterka ímynd.

Hin tillagan sem varð fyrir valinu í  fyrsta sæti var frá Arkís Arkitektum en það var Birgir Teitsson arkitekt sem hannaði hana og Sveinn Einarsson tækniteiknari var honum til aðstoðar við útfærsluna. Dómnefnd segir tillöguna metnaðarfulla með mörgum góðum hugmyndum en einnig sé góð grein gerð fyrir útfærslum og tæknilegum lausnum. Færanlegur hjólastandur sé sérstaklega áhugaverður og rúmi mörg hjól.

Dómnefnd skipuðu Pálmi Freyr Randversson M.Sc Urban Design en hann var einnig formaður, Margrét Leifsdóttir arkitekt, Kristin Soffía Jónsdóttir, varaformaður umhverfis- og samgönguráðs, Egill Sv. Egilsson iðnhönnuður og Hermann Georg Gunnlaugsson, landslagsarkitekt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert