Keyptu vegabréfin í Póllandi

mbl.is/Steinunn Ásmundsdóttir

Héraðsdómur Austurlands hefur kveðið upp dóma í málum tveggja manna sem komu með Norrænu s.l. þriðjudag og framvísuðu fölsuðum grískum vegabréfum. Vegabréfin höfðu mennirnir keypt í Póllandi. Þeir eru báðir að eigin sögn frá Georgíu.

Refsing hvors þeirra um sig var ákveðin 30 daga fangelsi og hafa þeir þegar hafið afplánun, samkvæmt frétt á vef lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert